31. október 2022 | 11:32
Skylda að merkja innfluttar rjúpnaafurðir
Umhverfisstofnun vekur athygli á því að innflytjendum og seljendum ber að merkja innfluttar rjúpur og rjúpnaafurðir með upprunalandi.
Það er ekki síður mikilvægt að veitingastaðir, sérverslanir með kjötvörur o.þ.h. merki allar rjúpuafurðir t.d. á matseðlum svo neytendur sjái skýrt hvaðan rjúpan sem á boðstólum er er upprunnin.
Þessi skylda nær til:
- Verslana
- Veitingastaða
- Innflutningsaðila
- Heildsala
- Allra sem selja innfluttar rjúpur eða rjúpnaafurðir
Reglur þessar eiga rætur að rekja til 10. gr. reglugerðar nr. 456/1994 um fuglaveiðar og nýtingu hlunninda af villtum fuglum með síðari breytingum.
Nýverið tók umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra ákvörðun um fyrirkomulag rjúpnaveiða fyrir yfirstandandi ár. Meðal þess sem fólgið er í ákvörðun ráðherra er áframhaldandi sölubann á rjúpum veiddum hér á landi.