Plastlaus september er í fullum gangi og margir sem reyna að draga úr notkun sinni á plasti. Plast er ekki bara mikill mengunarvaldur heldur getur það einnig innihaldið efni sem eru óæskileg fyrir heilsuna.
Margar gerðir plasts innihalda kokteil efna sem blandað er saman til að ná fram ákveðnum eiginleikum, t.a.m. lit, mýkt, viðnámi gegn UV-ljósi, viðnámi gegn íkveikju eða loga o.s.frv. Þessi íblöndunarefni hafa mörg hver skaðleg áhrif á heilsu okkar og umhverfið.
Það er ekki skylda framleiðenda að birta innihaldsefni í vörum sem við notum í okkar daglega lífi, t.d. vatnsbrúsa, matarílát, húsgögn, eldhúsáhöld og raftæki. Hinn almenni neytandi hefur þannig ekki beinan aðgang að upplýsingum um efnainnihald varanna.
Við getum verið örugg um að forðast efnin með því að kaupa vörur merktar áreiðanlegum umhverfismerkjum eins og Svansmerkinu eða Evrópublóminu.
Einnig getum við dregið úr plasti í umhverfi okkar með því að velja frekar hluti úr gleri, ryðfríu stáli, gegnheilum við, keramik og ull svo dæmi séu nefnd.
Það er margt annað hægt að gera til þess að lágmarka útsetningu sína fyrir óæskilegum efnum í plasti. Hér eru nokkur dæmi:
Meira um efnin í plasti og hvers vegna við viljum sniðganga þau.
Tengt efni: