Nú eru margir á leiðinni í sumarfrí og ætla ef til vill að fjárfesta í nýjum útivistarvörum, til dæmis útivistarfatnaði, gönguskóm, bakpoka eða tjaldi.
Við mælum eindregið með því að skoða merkingar og vanda valið. Oft leynast svokölluð PFAS efni í útivistarvörum. PFAS eru flúorefni sem eru notuð sem vatnsvörn.
Það er ekki skylda að merkja sérstaklega vörur sem innihalda PFAS efni en þau eru óæskileg fyrir heilsu okkar og umhverfi.
Merkingar eins og PFC free, fluorine free eða PTFE free gefa til kynna að vara innihaldi ekki þessi efni.
Við getum einnig verið örugg um að forðast efnin með því að kaupa vörur merktar með Svansmerkinu eða Evrópublóminu.
PFAS efnin leynast víða í okkar daglega lífi en það er ótrúlega margt sem hægt er að gera til þess að minnka útsetningu sína. Hér eru nokkur dæmi:
Meira um PFAS efni og hvers vegna við viljum sniðganga þau.
Mynd: PFAS efni finnast oft í útivistarvörum á borð við bakpoka og tjöld / Unsplash.
Tengt efni: