Umhverfisstofnun hefur móttekið umsókn um breytingu á starfsleyfi frá Arctic Sea Farm hf. vegna sjókvíaeldis þess í Patreks- og Tálknafirði.
Tillaga að breyttu starfsleyfi verður auglýst opinberlega þegar hún liggur fyrir og gefst þá öllum tækifæri að koma með athugasemdir áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins verður tekin.