Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur móttekið umsókn um nýtt starfsleyfi frá Íslenska gámafélaginu ehf. fyrir móttöku og meðhöndlun spilliefna að Kalksléttu 1 og Koparsléttu 22 við Esjumela á Kjalarnesi.
Unnið er úr umsókninni og að gerð starfsleyfistillögu.

Tillaga að starfsleyfi verður auglýst opinberlega þegar hún liggur fyrir og gefst þá öllum tækifæri að koma með athugasemdir áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins verður tekin.