Stök frétt

Á morgun, 21. nóvember, hefst Nýtnvikan og stendur hún yfir til 29. nóvember. Átakið er samevrópskt og hefur það að markmiði að hvetja fólk til að draga úr óþarfa neyslu, nýta hluti betur og draga þannig úr myndun úrgangs.

Í ár er þema vikunnar „það sem ekki sést“ og er þar vísað til alls úrgangs og sóunar sem myndast í framleiðsluferli vöru áður en hún kemst í okkar hendur en einnig mengunar sem verður vegna virkni vöru án þess að við verðum þess sérstaklega vör. Dæmi um úrgang og sóun sem við gerum okkur svo sannarlega ekki alltaf grein fyrir er orkunotkun og kolefnisspor netnotkunar.

Umhverfisstofnun og Reykjavíkurborg bjóða til þriggja hádegiserinda í tilefni Nýtniviku. Erindin fara fram á Teams og eru allir velkomnir.

Jukka Heinonen, prófessor við Háskóla Íslands, ríður á vaðið á mánudag og flytur erindið Out of sight, out of mind: the outsourced global warming impact of Iceland. Erindið fer fram á ensku og fjallar um neysludrifið kolefnisspor Íslendinga, en samkvæmt rannsóknum Jukka er það með því hæsta sem þekkist á heimsvísu. Sjá viðburð hér.

Á þriðjudag stígur Hrefna Björg Gylfadóttir á stokk með erindið Að lifa í samræmi við gildin okkar. Hrefna Björg er loftslagsaðgerðarsinni sem hefur kannað mismunandi leiðir til þess að hafa áhrif á umhverfi sitt, allt frá því að lifa zero waste lífsstíl yfir í að leiða stærri verkefni tengd kerfisbreytingum. Hrefna Björg ætlar að fjalla um hvernig við sem einstaklingar getum haft áhrif á tímum loftlagsbreytinga. Sjá viðburð hér.

Þriðja og síðasta erindið fjallar um umhverfisáhrif gagnavera og netnotkunar. Árni Jón Eggertsson, framkvæmdastjóri Reykjavík Data Center, segir frá umhverfisáhrifum gagnavera og hvernig við getum dregið úr stafrænu kolefnisspori okkar. Erindið fer fram á föstudegi í Nýtnivikunni. Viðburður verður birtur á Facebook síðu Nýtnivikunnar í næstu viku.

Umhverfisstofnun heldur úti síðunni Saman gegn sóun á vefnum, Instagram og Facebook þar sem hægt er að nálgast fróðleik og góð ráð um nýtni og úrgangsmál. Á fimmtudag mun Rauði kross Íslands taka yfir Instagram Saman gegn sóun og segja frá fatasöfnun og nytjamörkuðum sem þau reka.

Umhverfisstofnun hvetur sveitarfélög, fyrirtæki, stofnanir og almenning til þess að nýta vikuna til að fræðast um úrgangsmál og jafnvel skipuleggja sína eigin viðburði.