Stök frétt


Umhverfisstofnunin hefur nú tekið ákvörðun um breytingu á starfsleyfi Sveitarfélagsins Hornarfjarðar til urðunar á úrgangi í landi Fjarðar.

Sveitarfélagið óskaði eftir breytingu á starfsleyfinu til að fá undanþágu frá gr. 3.4 um söfnun hauggas þar sem urðunarstaðurinn falli undir b-lið tl. 4.2.4 í viðauka I við reglugerð nr. 738/2003. Lögð voru fram gögn sem sýndu fram á að tæknilega ógerlegt er að safna hauggasi á urðunarstaðnum, miðað við gefnar forsendur. Því var fallist á að veit undanþágu frá kröfum um söfnun hauggass. Jafnframt er ekki gerð krafa um sýnatöku og mælingar á hauggasi, sbr. tl. 4.2.6 í viðauka I við reglugerð nr. 738/2003. 

Við breytingu starfsleyfisins voru reglugerðartilvísanir einnig uppfærðar eftir því sem við átti.

Umhverfisstofnun auglýsti tillögu að breyttu starfsleyfi opinberlega á vefsíðu stofnunarinnar á tímabilinu 4. september til og með 2. október 2020 og var gefinn kostur á skriflegum umsögnum um tillöguna á því tímabili. Engin umsögn barst um tillöguna.

Starfsleyfi þetta, sem gefið er út í samræmi við ákvæði laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarnaeftirlit, laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og reglugerðar nr. 737/2003 um meðhöndlun úrgangs, gildir til 6. nóvember 2028.

Ákvörðun Umhverfisstofnunar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar Umhverfisstofnunar skv. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011, um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

Tengd skjöl:
Breytt starfsleyfi