Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur borist umsókn um starfsleyfi fyrir gas- og jarðgerðarstöð (GAJA) í Álfsnesi á vegum félagsins SORPA bs. Móttaka umsóknar um starfsleyfi var áður auglýst af heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur þann 6. apríl 2018. 

Umhverfisstofnun hefur metið umsóknina fullnægjandi og er unnið að gerð starfsleyfistillögu. 

Tillaga að starfsleyfi verður auglýst opinberlega þegar hún liggur fyrir og gefst þá öllum tækifæri að koma með athugasemdir áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins verður tekin.

 

mynd: Sorpa bs.