Stök frétt

Þann 5. maí sl. sendi Matorka ehf. Umhverfisstofnun erindi þar sem óskað var eftir breytingu á grein 2.4 í starfsleyfi fiskeldisstöðvar félagsins að Fellsmúla, 851 Hellu.

Sérfræðingar munu nú hefja vinnu við málið. Fallist stofnunin á að breyta starfsleyfinu verður tillaga að breyttu starfsleyfi auglýst opinberlega í fjórar vikur og verður almenningi gefinn kostur á að koma með athugasemdir.