Stök frétt

Nú er vor í lofti, snjóa leysir, frost er að fara úr jörðu og gróður vaknar til lífsins. Brothættur tími þar sem traðk getur ógnað jarðvegi og gróðri. Það á ekki síst við um gönguleiðir og vegi sem eru ekki uppbyggðir. Skemmdir og rask hljótast iðulega af ótímabærri umferð og akstri utan vega þegar krækt er fyrir skafla og polla eða ekið á ótraustri snjóþekju.

 

Einnig er hætta á skemmdum á gróðri í og við áningarstaði og á gönguleiðum þar sem jarðvegur verður vatnsósa og gróður þolir engan átroðning. Jarðvegur getur orðið gljúpur. Hvert fótspor getur skilið eftir sig djúpt far og jafnvel varanlegar skemmdir.

 

Ferðamannastaðir á hálendinu eru sérstaklega viðkvæmir á þessum árstíma. Því er mjög mikilvægt að þau svæði fái frið fyrir allri umferð á meðan frost er að fara úr jörðu, jarðvegur að þorna og gróður að vakna til lífsins.

 

Vegagerðin er af þessum sökum byrjuð að loka vegum á hálendinu. Annars vegar til að koma í veg fyrir skemmdir á vegum en einnig til verndar náttúrunni. Akstur inn á lokað svæði er óheimill samkvæmt lögum og varðar sektum.

 

Vegagerðin, Umhverfisstofnun og Vatnajökulsþjóðgarður eru í samstarfi um að meta ástand vega og náttúruverndarsvæða að vori. Stofnanirnar þrjár hafa gert með sér minnisblað þar sem fjallað er um tilhögun undanþáguveitingar á akstri á hálendisvegum þar sem ferðaþjónustuaðilar geta fengið undanþágur þau ár sem ekki er hægt að opna vegi og náttúruverndarsvæði fyrr en í byrjun sumars. Á vef Vegagerðarinnar eru upplýsingar um lokanir og opnun fjallvega og hvenær undanþága á akstri inn á lokuð svæði kemur til greina. Má nálgast þær upplýsingar hér.

 

Það er mikilvægt að ganga, hjóla eða keyra ekki um svæði sem eru viðkvæm vegna aurbleytu. Stöndum saman vörð um náttúru Íslands!