Umhverfisstofnun hefur nú lagt fram tillögu að friðlýsingu Geysissvæðisins í Bláskógabyggð sem náttúruvættis. Tillagan er unnin af samstarfshópi sem í eiga sæti fulltrúar Umhverfisstofnunar, Bláskógabyggðar og umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.
Frestur til að senda inn ábendingar og athugasemdir við tillöguna er til og með 23. apríl 2020.
Tillöguna og nánari upplýsingar má finna hér.