Stök frétt

Umhverfisstofnun auglýsir nú landvarðanámskeið 2020. Þátttaka í námskeiðinu veitir réttindi til að starfa sem landvörður og ganga þeir alla jafna fyrir við ráðningar í störf landvarða.

Námskeiðið er 110 klst. og eru megin umfjöllunarefnin eftirfarandi;

  • Landverðir, helstu störf
  • Náttúruvernd og stjórnsýsla náttúruverndarmála 
  • Verðmæti friðlýstra svæða, náttúra, menning og saga
  • Gestir friðlýstra svæða
  • Mannleg samskipti
  • Náttúrutúlkun, fræðsla á friðlýstum svæðum, bóklegt og verklegar æfingar 
  • Vinnustaðir landvarða
  • Öryggisfræðsla

Námskeiðið hefst 30. janúar og lýkur 23. febrúar. Kennt er um helgar og á kvöldin á virkum dögum. Hluti námskeiðsins verður kenndur í fjarkennslu en skyldumæting er í tvær lotur, þar af lotu kennda á Snæfellsnesi. Námskeiðið er háð því að næg þátttaka náist. Námskeiðsgjald er kr. 155.000.

Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu Umhverfisstofnunar hér og fer skráning fram í Gagnagáttinni með rafrænum skiríkjum eða Íslykli.
Skráning hefst klukkan 20:00 2. janúar og stendur til og með 15. janúar 2020.

Nánari upplýsingar veitir Kristín Ósk Jónasdóttir hjá Umhverfisstofnun, kristinosk@ust.is
*Ath, öll kennsla og námsgögn eru á íslensku.