Stök frétt

Drög að úthlutun hreindýraarðs hafa verið send til kynningar í sveitarfélögum.

Munu þau liggja frammi á skrifstofum sveitarfélaganna til skoðunar frá 2. desember til 13. desember 2019, sem er sá frestur sem gefst til að gera athugasemdir.

Landeigendum og/eða ábúendum er bent á að senda inn skrifegar athugasemdir innan þess tíma svo að Umhverfsstofnun geti tekið afstöðu til þeirra og hægt sé að greiða arðinn út sem fyrst að fresti loknum.

Skrifegar athugasemdir sendist til skrifstofu Umhverfsstofnunar Tjarnarbraut 39, pósthólf 174, 700 Egilsstaðir.