Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur fengið tilkynningar um að notendur náttúrulaugarinnar í Landmannalaugum hafi fengið útbrot vegna sundmannakláða. Um ræðir sundlirfur fuglablóðagða (Schistosomatidae) sem valda útbrotum þegar farið er í vatn þar sem lirfurnar eru til staðar. Kláðabólur myndast þegar ofnæmiskerfi líkamans hefur tekist að stöðva lirfurnar. Sýni menn ekki ofnæmisviðbrögð hefur lirfunni tekist að komast óáreittri inn í líkamann, en þar drepst hún fljótlega. Blóðögðurnar finnast í andfuglum eins og stokkönd og duggönd sem eiga til að dvelja á svæðinu í Landmannalaugum.

Umhverfisstofnun hafði samráð við sóttvarnarlækni og byggist niðurstaða á greiningum frá Tilraunastöðinni á Keldum. Stofnunin í samstarfi við fagaðila vinnur að því að koma í veg fyrir að sundmannakláði berist áfram í náttúrulaugina í Landmannalaugum. Ekki hefur tekist að koma í veg fyrir það á þessu ári og þurfa því baðgestir að hafa það í huga að enn er möguleiki á að smitast af sundmannakláða.

Hér má finna nánari upplýsingar um sundmannakláða: http://keldur.is/um_fuglablodogdur_og_sundmannaklada