Stök frétt

Undanfarið hafa fulltrúar Umhverfisstofnunar, rétthafa lands,  Snæfellsbæjar og hagsmunaaðila unnið að gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir náttúruvættið Bárðarlaug.

Drög að áætluninni eru hér með lögð fram til kynningar.

Bárðarlaug er sporöskjulaga tjörn í fögrum gjallgíg vestan við veg niður að Hellnum á sunnanverðu Snæfellsnesi.

Bárðarlaug var friðlýst sem náttúruvætti árið 1980.  Hún hefur jarðfræðilegt verndargildi en einnig fegurðargildi. .

Stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Bárðarlaug er ætlað að vera stefnumótandi skjal, unnið í samvinnu við landeigendur, sveitarfélag og hagsmunaaðila og er hugsað sem stjórntæki til að móta framtíðarsýn svæðisins. Markmiðið með gerð hennar er að leggja fram stefnu um verndun Bárðarlaugar og hvernig viðhalda skuli verndargildi svæðisins þannig að sem mest sátt ríki um. Í áætluninni er lögð fram stefnumótum til 10 ára, ásamt aðgerðaáætlun til fimm ára.

 

Drög að stjórnunar- og verndaráætlun fyrir náttúruvættið auk auglýsingar um friðlýsingu svæðisins má sjá hér.

 

Frestur til að skila inn ábendingum og athugasemdum varðandi tillöguna er til og með 9. september 2019.

 

Hægt er að skila inn ábendingum og athugasemdum á heimasíðu Umhverfisstofnunar, með tölvupósti á netfangið ust@ust.is, eða með því að senda póst til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík.

 

Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Gunnarsdóttir, gudbjorg@ust.is, eða í

síma 591-2000.