Stök frétt

Í samstarfi við Umhverfisstofnun, Íslandsstofu og fleiri hagaðila eru ferðamenn nú hvattir í herferð undir merkjum Inspired by Iceland til að draga úr plastnotkun og drekka kranavatn á ferð sinni um landið. Áhersla er lögð á að kynna íslenska vatnið sem lúxusvöru undir heitinu „Kranavatn” sem finna má ókeypis í næsta krana um allt land.

Markmiðið er að draga úr óþarfa plastnotkun ferðamanna og vekja um leið athygli á gæðum íslenska vatnsins sem er eitt hreinasta og bragðbesta kranavatn í heimi. Með verkefninu er einnig ætlunin að styðja við umhverfisvernd og aðgerðir til að uppfylla Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.

65% nota meira plast á ferðalögum

Í könnun sem framkvæmd var meðal 16.000 manns í Norður-Ameríku og Evrópu sögðust 65% aðspurðra nota meira af plastflöskum á ferðalögum heldur en heima hjá sér. Aðspurð um meginástæður þess nefndu 70% órökstuddan ótta við kranavatn og 19% nefndu þægindi. Í Kranavatnsherferðinni er skorað á ferðamenn að breyta þessu mynstri og drekka vatn beint af krana þegar þeir ferðast um Ísland og fylla á endurnýjanleg ílát í stað þess að kaupa vatn á plastflöskum.

Tvær flugur slegnar í einu höggi

Kristín Linda Árnadóttir forstjóri Umhverfisstofnunar lýsir mikilli ánægju með átakið:

„Það má segja að hér séu slegnar tvær flugur í einu höggi, að takast á við mikilvægi þess að uppræta einnota umbúðir sem enda jafnvel í náttúrunni og minna um leið á að kranavatn er best.“