Stök frétt

Það vorar snemma á miðhálendinu í ár og landverðir Umhverfisstofnunar eru komnir til starfa í Friðlandi að Fjallabaki. Náttúran skartar sínu fegursta og gestir himinlifandi yfir því að komast á hálendið svo snemma sumars. Með aukinni bílaumferð fylgja þó vandamál, ólöglegur utanvegaakstur sem er ein mesta ógnin gegn verndargildi friðlandsins.

Í eftirliti starfsmanna Umhverfisstofnunar um friðlandið þegar fjallvegir voru opnaðir í vor komu í ljós mörg ljót sár eftir utanvegaakstur sbr. mynd sem hér fylgir. Neikvæð áhrif utanvegaaksturs eru margvísleg; ásýnd svæðisins versnar til muna, hjólförin skilja eftir rákir eða sár í gróðursverðinum sem getur tekið tugi ára að jafna sig. Það skapast kjöraðstæður fyrir vatnsrof sem veldur jarðvegsrofi og síðast en ekki síst hafa þessi ummerki neikvæð áhrif á upplifun ferðamanna í óbyggðum.

Umhverfisstofnun hefur sl. ár ásamt fleiri aðilum staðið fyrir átaki í að reyna að sporna við þessum ósóma sem skilað nokkrum árangri. Almenningur og ferðaþjónustufyrirtæki eru meðvitaðri um alvarleika málsins og taka þátt í að sporna við og upplýsa um ólöglegan utanvegaakstur. Einnig hefur landvarsla verið aukin á hálendinu, en betur má ef duga skal. Landverðir starfa einungis yfir sumartímann í 3-4 mánuði á ári en ferðamenn fara um hálendið allt árið um kring. Drjúgur tími landvarða yfir sumartímann fer í eftirlit og lagfæringar á sárum eftir utanvegaakstur en fæstir þeirra sem valda skemmdunum eru gripnir á vettvangi.

Mikilvægt er að efla enn frekar fræðslu um neikvæð áhrif utanvegaaksturs og ná til gesta áður en lagt er upp í ferðalag um náttúru Íslands.