Stök frétt

Undanfarin ár hefur Umhverfisstofnun unnið að undirbúningi friðlýsingar á Látrabjargi, skv. 39. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd, með samtali við landeigendur, sveitarfélag og fleiri. Skv. 2. mgr. sömu greinar skal Umhverfisstofnun gera drög að friðlýsingarskilmálum og leggja fyrir landeigendur og aðra rétthafa lands, viðkomandi sveitarfélög og aðra sem hagsmuna eiga að gæta.  

Umhverfisstofnun kynnir hér með tillögu að friðlýsingarskilmálum fyrir friðland að Látrabjargi ásamt tillögu að mörkum svæðisins.  
Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna er til og með 18. júlí 2019.  

Frekari upplýsingar hér.  

Athugasemdum við tillöguna má skila á heimasíðu Umhverfisstofnunar, með tölvupósti á netfangið ust@ust.is eða senda með pósti til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík.