Stök frétt

Umhverfisstofnun, ásamt landeigendum jarðarinnar Dranga og sveitarfélaginu Árneshreppi hefur uppi áform um friðlýsingu jarðarinnar Dranga á Ströndum. Áform um friðlýsingu skulu kynnt í samræmi við 2. mgr. 38. gr. náttúruverndarlaga. Gert er ráð fyrir að svæði sem ekki er á framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár skuli kynnt sérstaklega.

Frestur til að skila athugasemdum við áformin er til og með 10. apríl 2019. Frekari upplýsingar hér.

Athugasemdum við áformin má skila á heimasíðu Umhverfisstofnunar, með tölvupósti á netfangið ust@ust.is eða með pósti til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík.

(Mynd: Gunnar Guðjónsson)