Umhverfisstofnun boðar í dag til opins kynningarfundar um niðurstöður eftirlits og umhverfisvöktunar á Grundartanga að Hótel Glym, Hvalfjarðarsveit klukkan 15:30.
Í starfsleyfum tiltekinna stærri fyrirtækja er kveðið á um að boða skuli til opins kynningarfundar um umhverfisvöktun og losun af völdum starfseminnar.
Dagskrá fundarins:
- Björgvin Helgason fundarstjóri setur fundinn.
- Guðbjörg Stella Árnadóttir frá Umhverfisstofnun kynnir eftirlit Umhverfisstofnunar.
- Halla Einarsdóttir frá Umhverfisstofnun kynnir niðurstöður eftirlits og mælinga á losun iðjuveranna 2017.
- Eva Yngvadóttir frá Eflu verkfræðistofu fjallar um niðurstöður umhverfisvöktunarinnar.
- Steinunn Dögg Steinsen frá Norðuráli flytur erindi.
- Sigurjón Svavarsson frá Elkem Ísland flytur erindi.
- Umræður að loknum framsögum.
Skjöl:
Skýrsla um umhverfisvöktun 2017
Vöktun andrúmsloft 2017
Vöktun ferskvatn 2017
Vöktun flæðigryfjur 2017
Vöktun grasbítar 2017
Vöktun gróður 2017
Vöktun Klappir 2017