Stök frétt

Samstarfshópur um gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir friðlandið á Hornströndum býður til opins fundar um áætlunargerðina miðvikudaginn 15. nóvember klukkan 17:00 - 19:00, í Háskólasetri Vestfjarða á Ísafirði.

Markmið fundarins er að upplýsa íbúa, hagsmunaaðila og landeigendur um gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir Hornstrandafriðlandið og kalla eftir skoðunum heimamanna um þau málefni sem fjallað verður um í áætluninni.

Stjórnunar- og verndaráætlunin er unnin skv. 81. gr. laga um náttúruvernd 60/2013 en þar segir m.a.

„Í stjórnunar- og verndaráætlun skal m.a. fjallað um landnýtingu, landvörslu, vöktun, uppbyggingu, fræðslu og miðlun upplýsinga, verndaraðgerðir og aðgengi ferðamanna, þar á meðal aðgengi fatlaðs fólks. Ef ekki hafa verið settar sérstakar reglur um umferð manna og dvöl á viðkomandi svæði í auglýsingu um friðlýsingu er heimilt að setja slíkar reglur í stjórnunar- og verndaráætlun svo og reglur um önnur atriði er greinir í IV. kafla”

Frekari upplýsingar um vinnslu áætlunarinnar má finna hér.

Jafnframt verður fundur fyrir landeigendur haldinn í Reykjavík þann 23. nóvember.

Landeigendur, hagsmunaaðilar og aðrir þeir sem hafa áhuga á svæðinu eru hvattir til þátttöku.