Stök frétt

Umhverfisstofnun í samstarfi við ábúendur á Brjánslæk hafa unnið að uppsetningu sýningar um náttúruvættið Surtarbrandsgil. Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, opnaði í dag sýningu í gamla prestbústaðinum á Brjánslæk.

Surtarbrandsgil var friðlýst sem náttúruvætti árið 1975 en gilið er einn merkasti fundarstaður plöntusteingervinga á Íslandi. Þar hafa verið greindar um 65 tegundir plantna, aðallega lauftré. Surtarbrandsgil er þekkt víða utan landsteinanna og finna má steingervinga úr gilinu á náttúrugripasöfnum víða í Evrópu. Eins og nafnið gefur til kynna er einnig talsvert af surtarbrandi í gilinu.
Tilgangurinn með sýningunni er að fræða almenning um jarðfræði Surtarbrandsgils og það loftslag og gróðurfar sem var þar fyrir um 11- 12  milljón árum en steingervingar úr gilinu geyma mikilvægar vísbendingar um það. Bæði steingervingar og surtarbrandur eru til sýnis á sýningunni auk þess sem mikilvægi þess að vernda fundarstaði steingervinga er undirstrikað.

Ráðherra sagðist vonast til að sýningin yrði til þess að styrkja byggð á svæðinu og myndi stuðla að heimsóknum gesta til að skoða þá sögu sem surtarbrandurinn varðveitir.

Mikið magn af steingervingum hafa verið fjarlægðir úr Surtarbrandsgili í gegnum árin og er svæðið á rauðum lista Umhverfisstofnunar. Nú hefur tekist að koma í veg fyrir það að mestu með því að auka landvörslu, setja upp hlið og skilti ásamt því að vera með skipulagðar fræðslugöngur í gilið með landverði fimm sinnum í viku yfir sumartímann.    

Hönnuður sýningarinnar er Gunnlaugur Björn Jónsson arkitekt en Hákon Ásgeirsson sérfræðingur Umhverfisstofnunar sá um heimildaröflun og textagerð. Friðgeir Grímsson veitti leyfi fyrir notkun heimilda og mynda úr bók sinni „Late Cainozoic Floras of Iceland“.

Sýningin verður í gamla prestbústaðnum á Brjánslæk sem var byggt árið 1912 og ábúendur á staðnum hafa gert upp en þeir ætla að opna kaffihús í húsinu næsta sumar. Þá verður einnig hægt að skoða sýninguna á opnunartíma kaffihússins. Landvörður Umhverfisstofnunar á svæðinu mun bjóða upp leiðsögn um sýninguna samhliða skipulögðum gönguferðum í gilið í sumar. Nánari upplýsingar eru hjá landverði í síma 591 2000 eða 822 4080.