Stök frétt

Drög af skýrslu starfshóps um friðland að Fjallabaki eru nú aðgengileg á vef Umhverfisstofnunar.

Áhugasamir og hagsmunaaðilar eru hvattir til þess að koma með athugasemdir og ábendingar um efni skýrslunnar í tölvupósti á netfangið ust@ust.is merkt „Fjallabak–skýrsla“
eigi síðar en þriðjudaginn 29. mars 2016.

Markmið með skipun starfshóps um friðland að Fjallabaki er að styrkja stöðu svæðisins, leita leiða til að efla rekstur þess og kanna hvort tækifæri séu til að stækka svæðið.