Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir meðhöndlun úrgangs að Bjarnhólum, Borgarbyggð.  Rekstraraðili er sveitarfélagið Borgarbyggð.  Samkvæmt tillögunni verður heimilt að taka á móti allt að 520 tonnum af úrgangi á ári.  Þetta magn skiptist í urðun á 80 tonnum af óvirkum úrgangi, kurlun og aðra meðhöndlun á 310 tonnum af viðarúrgangi og garðaúrgangi, jarðgerð úr 120 tonnum af garðaúrgangi og hrossataði og geymslu á 10 tonnum af brotamálmum.  Gildistími starfsleyfis verður 16 ár frá útgáfudegi.  Tillagan, ásamt starfsleyfisumsókn og fylgigögnum, mun liggja frammi til kynningar í afgreiðslu ráðhúss Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, Borgarnesi, til 18. mars 2016.  Starfsleyfistillögu og önnur gögn má einnig nálgast hér fyrir neðan.  Öllum er frjálst að gera athugasemdir við starfsleyfistillöguna en þær skulu vera skriflegar, undirritaðar með nafni og heimilisfangi og sendar Umhverfisstofnun.  Frestur til að skila inn athugasemdum er til 18. mars 2016.

Tengd skjöl