Stök frétt

Nýtnivika fer fram dagana 21. - 29. nóvember. Vikan er samevrópskt átak og er markmið hennar er að draga úr myndun úrgangs og hvetja fólk til að nýta hluti betur. Mismunandi þemu eru tengd þessari viku en í ár er þemað að „draga úr efnishyggju – að gera meira úr minna“. Margt skemmtilegt er í boði þessa viku eins og dagskráin ber með sér. Njótið vel.

 

 

NÝTNIVIKAN 2015

- NÝTUM OG NJÓTUM -

Í GANGI ALLA VIKUNA


Græn bók – góð bók, skiptimarkaður.
  • Hvað: Skiptibókamarkaður Borgarbókasafns Reykjavíkur. Gestir eru hvattir til að koma með bækur sem þeir eru búnir að lesa og finnst skemmtilegar og leyfa öðrum að njóta þeirra. Skilyrði er að þær séu vel með farnar, hreinar og áhugaverðar.
  • Hvenær: Á opnunartíma safnanna.
  • Hvar: Á öllum söfnun Borgarbókasafns Reykjavíkur (http://www.borgarbokasafn.is).
Heklum teppi!
  • Hvað: Það er upplagt að nota garnafganga til að hekla fallegt teppi. Leggðu lykkju á leið þína og komdu við á handavinnutorgi Borgarbókasafns í Grófinni og leggðu þitt af mörkum í nýtniteppið. Einnig hægt að nálgast ýmsar bækur með ýmsum hugmyndum um hvernig hægt er að nýta afganga í eigulega hluti.
  • Hvenær: Á opnunartíma Borgarbókasafns í Grófinni.
  • Hvar: Menningarhús Grófinni, Tryggvagötu 15.

MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER


Nýtniamman – facebook leikur
  • Hvað: Fésbókarleikur Reykjavíkurborgar þar sem keppst verður við að finna besta nýtniráðið fyrir Nýtniömmuna. Besta ráðið verður verðlaunað 1. desember með verðlaunum í anda Nýtnivikunnar.
  • Hvenær: 23.-30. nóvember.
  • Hvar: Fésbókarsíða Reykjavíkurborgar http://www.facebook.com/reykjavik
Gefum upplifun – facebook leikur
  • Hvað: Facebook leikur Umhverfisstofnunnar þar sem óskað er eftir hugmyndum að gjöfum í formi upplifunar. Á föstudaginn 27. nóvember verður síðan dregið úr hugmyndunum og vinningshafinn fær 20.000 kr. gjafabréf í Þjóðleikhúsið frá Umhverfisstofnun.
  • Hvenær: 23. - 27. nóvember.
  • Hvar: Á facebook síðu stofnunarinnar https://www.facebook.com/umhverfisstofnun.

MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER


Swap till you drop
  • Hvað: Skiptifata- og bókamarkaður. Það er óþarfi að henda hlutum sem þú þarft ekki lengur. Leyfðu fötunum sem þú ert orðin þreytt á og bókunum sem þú ert búin að lesa að finna nýja eigendur og nældu þér í eitthvað spennandi í leiðinni.
  • Hvenær: kl. 16:30 – 19:30.
  • Hvar: Loft Hostel, Bankastræti 7.

FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER


Grænar stofnanir læra nýtni í matargerð
  • Hvað: Happdrætti á vegum Umhverfisstofnunnar þar sem einn þátttakenda úr hópi ríkisstofnana í verkefninu Grænum skrefum í ríkisrekstri verður dreginn út og gefið matreiðslunámskeiðið „Eldað úr öllu“ hjá Kvenfélagasambandi Íslands fyrir allt að 25 manns.

FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER


Kynning á forrannsókn um matarsóun Reykvíkinga
  • Hvað: Kynning á forrannsókn sem Landvernd hefur unnið að á matarsóun í Reykjavík í samstarfi við Reykjavíkurborg.
  • Hvenær: kl. 12:00 – 13:30.
  • Hvar: Kvennaheimilinu Hallveigarstöðum, Túngötu 14.

LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER


Nýtum, notum og njótum
  • Hvað: Viðburður Rauða Krossins og Vakandi um endurnotkun og enduvinnslu fatnaðar. Fatamarkaður, tískusýning, tónlistaratriði, stutt erindi og skemmtun fyrir börnin.
  • Hvenær: kl. 13:00 – 16:00.
  • Hvar: Ráðhús Reykjavíkur.
Býttifatamarkaður í Borgarbókasafninu Kringlunni
  • Hvað: Komdu með flíkurnar sem ekki eru lengur í notkun og fáðu „nýjar“ í staðinn. Tekið verður á móti fötum, skóm og fylgihlutum alla vikuna en markaðurinn sjálfur fer fram laugardaginn 28. nóvember. Það verður heitt á könnunni.
  • Hvenær: kl. 13:00 – 17:00
  • Hvar: Borgarbókasafnið Kringlunni, við Listabraut.