Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir urðunarstað Norðurþings í Laugardal við Húsavík.  Samkvæmt tillögunni verður heimilt að taka á móti og urða allt að 500 tonn af óvirkum úrgangi á ári og jarðgera allt að 200 tonn af garðaúrgangi á ári.  Gildistími starfsleyfis verður 16 ár frá útgáfudegi.  Tillagan, ásamt starfsleyfisumsókn og fylgigögnum, mun liggja frammi til kynningar í afgreiðslu stjórnsýsluhúss Norðurþings, Ketilsbraut 7–9, Húsavík, til 9. desember 2015.  Starfsleyfistillögu og önnur gögn má einnig nálgast hér fyrir neðan.

Öllum er frjálst að gera athugasemdir við starfsleyfistillöguna en þær skulu vera skriflegar, undirritaðar með nafni og heimilisfangi og sendar Umhverfisstofnun. 

Frestur til að skila inn athugasemdum er til 9. desember 2015.

Tengd skjöl