Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir urðunarstað Vopnafjarðarhrepps að Búðaröxl, Vopnafjarðarhreppi.  Samkvæmt tillögunni verður heimilt að taka á móti og urða allt að 1000 tonn af úrgangi á ári og verður gildistími starfsleyfis til næstu 16 ára.  Tillagan, ásamt starfsleyfisumsókn og fylgigögnum, mun liggja frammi til kynningar á skrisfstofu Vopnafjarðarhrepps, Hamrahlíð 15, Vopnafirði, til 30. nóvember 2015.  Starfsleyfistillögu og önnur gögn má einnig nálgast hér fyrir neðan.  Öllum er frjálst að gera athugasemdir við starfsleyfistillöguna en þær skulu vera skriflegar, undirritaðar með nafni og heimilisfangi og sendar Umhverfisstofnun. 

Frestur til að skila inn athugasemdum er til 30. nóvember 2015.

Tengd skjöl