Stök frétt

Skrifað hefur verið undir verndar- og stjórnunaráætlun náttúruvættisins Dimmuborga í Mývatnssveit. Það voru Daði Lange Friðriksson sem staðfesti áætlunina fyrir hönd Landgræðslu Ríkisins og Kristín Linda Árnadóttir og Davíð Örvar Hansson fyrir hönd Umhverfisstofnunar.

Með gildistöku áætlunarinnar er tekin í gagnið skýr starfsáætlun um hvernig verndargildi Dimmuborga verði viðhaldið. Liður í því er m.a. talning ferðamanna sem sækja svæðið heim en Landgræðslan, Umhverfisstofnun og Háskóli Íslands vinna nú að talningu ferðamanna sem mun gefa skýra mynd af fjölda ferðamanna á svæðinu. Með aukinni þekkingu á fjölda ferðamanna og dreifingu á gestakomum eykst yfirsýn sem gerir uppbyggingu á svæðinu markvissari.

Undirritunin er táknrænn endir vinnuferlis sem hófst í desember og lauk á gróskumiklum rigningardegi í Dimmuborgum. Áhugasamir geta kynnt sér efni áætlunarinnar á eftirfarandi síðu: