Stök frétt

Höfundur myndar: Kristinn Már Ársælsson

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir urðunarstað Byggðasamlagsins Hulu á Skógasandi, Rangárþingi eystra. Samkvæmt tillögunni verður heimilt að taka á móti og urða allt að 400 tonn af úrgangi á ári og að reka söfnunarstöð (gámastöð) þar sem heimilt verður að taka á móti allt að 130 tonnum af úrgangi á ári. Tillagan gerir ráð fyrir að rekstur urðunarstaðarins verði með sama sniði og verið hefur. 

Samkvæmt starfsleyfistillögunni verður gildistími starfsleyfis til næstu 16 ára. Tillagan, ásamt starfsleyfisumsókn og fylgigögnum, mun liggja frammi til kynningar í afgreiðslu Ráðhúss Rangárþings eystra, Hlíðarvegi 16, Hvolsvelli, til 5. febrúar 2014. Starfsleyfistillögu og önnur gögn má einnig nálgast á heimasíðu Umhverfisstofnunar. Öllum er frjálst að gera athugasemdir við starfsleyfistillöguna en þær skulu vera skriflegar, undirritaðar með nafni og heimilisfangi og sendar Umhverfisstofnun. 

Frestur til að skila inn athugasemdum er til 5. febrúar 2014.

Tengd gögn