19. ágúst 2013 | 15:40
Gæsaveiðitímabilið að hefjast
Veiðitímabil á grágæs og heiðagæs hefst 20. ágúst og stendur til 15. mars.
Varpið hófst fremur seint í ár og því er upphafi veiðinnar
seinkað
á austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs til 1. september. Algengt er að veiðimenn
bíði með gæsaveiði þar til í september ekki síst í ljósi þess að þá er
einnig heimilt að hefja veiðar á þeim andategundum sem veiddar eru. Fjöldi
veiðimanna fer hinsvegar til veiða fyrstu dagana, sérstaklega þeir sem veiða
heiðagæsir.
Grágæs og heiðagæs hefur fjölgað á undanförnum árum samkvæmt talningum og
hækkandi veiðitölur endurspegla gott ástand á gæsastofnum. Veiðimenn eru
minntir á að óheimilt er að skjóta ófleyga fugla og hafa ber í huga að búast
má við ófleygum gæsaungum á fyrstu dögum veiðitímabilsins. Veiðimenn eru
ennfremur minntir á alfriðun blesgæsar en hún hefur verið friðuð síðan 2003
og að ekki er heimilt að hefja veiðar á helsingja í Austur– og
Vestur–Skaftafellssýslum fyrr en 25. september.