Höfundur myndar: Sigurður Ingason
Rekstraraðili hefur aflað álits Skipulagsstofnunar þess efnis að áformin rúmist innan þeirra forsendna sem fyrri umfjöllun hennar byggði á.
Umhverfisstofnun telur að þessi áform kalli á breytingu á grein 1.2 í starfsleyfi fyrirtækisins. Stofnunin hefur fallist á að leggja fram breytingartillögu og auglýsir hana hér með á sama hátt og þegar auglýst er ný tillaga að starfsleyfi. Tillagan er auglýst á tímabilinu 29. apríl til 29. júní 2013 og frestur til að gera athugasemdir er því til 29. júní 2013.