Stök frétt

Frestur til að sækja um hreindýraveiðileyfi rann út á miðnætti 15. febrúar og er verið að fara yfir umóknir. Þegar fjöldi umsókna og fjöldi þeirra sem eru á fimm skipta reglunni liggur fyrir verður það birt hér á síðunni. 

Dregið verður úr hreindýraveiðileyfum á laugardaginn 23. febrúar kl. 14:00 í húsakynnum Þekkingarnets Austurlands á Egilsstöðum. Eins og undanfarin ár verður hægt að fylgjast með útdrættinum á veraldarvefnum og má nálgast slóðina hér á vef Umhverfisstofnunar þegar þar að kemur. Niðurstöður útdráttar verða sendar á sunnudegi eða mánudegi til umsækjenda.

Þeir umsækjendur sem fá dýr þurfa að greiða staðfestingargjald fyrir 1. apríl hyggist þeir taka leyfið. Staðfestingargjald er fjórðungur af verði leyfisins og fæst ekki endurgreitt. Þá vill Umhverfisstofnun minna á skotprófið fyrir þá sem fá dýr. Þeir umsækjendur sem fá leyfi úthlutað en hyggjast ekki nýta leyfið eru hvattir til að tilkynna þá ákvörðun sem fyrst.

Tengt efni