Stök frétt

15. ársfundur Umhverfisstofnunar og náttúruverndarnefnda sveitarfélaga verður haldinn þann 13. nóvember nk.

Að þessu sinni verður fundurinn haldinn í Miðgarði í Skagafirði.

Í lögum um náttúruvernd nr. 44/1999 er kveðið á um hlutverk náttúruverndarnefnda og í 11. gr. laganna segir að Umhverfisstofnun og fulltrúar náttúrverndarnefnda skuli halda a.m.k. einn sameiginlegan fund á ári. Náttúruverndarnefndir eiga einnig að veita Umhverfisstofnun yfirlit yfir störf sín með skýrslu í lok hvers árs. Í hverju sveitarfélagi starfar þriggja til sjö manna náttúrverndarnefnd sem kosin er til fjögurra ára.

Náttúruverndarnefndir gegna mikilvægu hlutverki, skulu vera sveitarstjórnum til ráðgjafar um náttúruverndarmál og jafnframt stuðla að náttúruvernd á sínu svæði, m.a. með fræðslu og umfjöllun um framkvæmdir og starfsemi sem líkleg er til þess að hafa áhrif á náttúruna.

Frekari upplýsingar um fundinn veita Aðalbjörg Birna Guttormsdóttir og Elín Sigríður Óladóttir hjá Umhverfisstofnun.