Stök frétt

Rjúpa í vetrarbúning.

Rjúpnaveiðitímabilið í ár hefst á föstudaginn 26. október. Umhverfisstofnun vil benda á að sama fyrirkomulag er á rjúpnaveiðum og 2011 þar sem fjöldi veiðidaga eru 9 vegna bágrar stöðu stofnsins. Leyfilegir veiðidagar árið 2012 eru  eins og áður segir 9 á þessu tímabili og skiptast þeir niður á fjórar helgar.

Leyfilegt er að veiða

  • Föstudaginn 26.október - sunnudagsins 28.október (3 dagar)
  • Laugardaginn 3.nóvember - sunnudaginn 4.nóvember (2 dagar)
  • Laugardaginn 17.nóvember - sunnudaginn 18.nóvember ( 2 dagar)
  • Laugardaginn 24.nóvember - sunnudaginn 25.nóvember (2 dagar)

Sölubann gildir áfram á rjúpu og öllum rjúpnaafurðum og áfram er friðað fyrir veiði á ákveðnu svæði á Suðvesturlandi. 

Kort af friðuðu svæði vegna rjúpnaveiða á Suðvesturlandi - stærri útgáfa.

Rjúpnaskyttur eru sem fyrr hvattar til að stunda hófsamar og ábyrgar veiðar og ganga vel um náttúruna. Umhverfisstofnun hvetur veiðimenn til notkunar á rafrænu veiðibókinni og einnig að kynna sér vel þeir mega veiða. Virkt eftirlit verður með veiðunum á landi og úr lofti.

Umhverfisstofnun vill einnig minna verkefnið „Láttu þitt ekki eftir liggja“ sem er hvatningarátak til veiðimanna í samstarfi við SKOTVÍS og Olís um að taka með sér tóm skothylki af veiðislóð.

Ökum aðeins vegi og merkta slóða en ekki utan þeirra.

Hér að neðan er myndband um rjúpnaveiðar

Náttúrufræðistofnun Íslands hvetur rjúpnaskyttur til að klippa annan vænginn af rjúpunum sem veiddar eru og senda stofnuninni. Af vængjunum má ráða hvort um er að ræða fugl á fyrsta ári eða eldir fugl. Fuglum af sama veiðisvæði eða úr sömu sveit þarf að halda saman í poka þannig að hægt sé að sundurgreina sýnin eftir landshlutum.

Vængina má senda til: 

Náttúrufræðistofnun Íslands
Urriðaholtsstæti
6-8
212 Garðabær

Náttúrufræðistofnun mun greiða sendingarkostnað sé þess óskað. Menn eru beðnir um að láta nafn sitt og heimilisfang fylgja með sýnunum þannig að hægt sé að senda þeim, sem það vilja, niðurstöður greininga úr þeirra sýni og heildarniðurstöðurnar í lokin.