Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir starfsemi Sagaplasts ehf. við Rangárvelli, Akureyri. Samkvæmt tillögunni verður heimilt að taka á móti allt að 600 tonnum af spilliefnum og 300 tonnum af raf- og rafeindatækjaúrgangi til meðhöndlunar á ári. Samkvæmt tillögunni verður gildistími starfsleyfis til næstu sextán ára. Tillagan, ásamt starfsleyfisumsókn og fylgigögnum, mun liggja frammi til kynningar í afgreiðslu Ráðhúss Akureyrar, Geislagötu 9, Akureyri, til 4. júlí 2012. Starfsleyfistillögu og önnur gögn má einnig nálgast hér að neðan. 

Öllum er frjálst að gera athugasemdir við starfsleyfistillöguna en þær skulu vera skriflegar, undirritaðar með nafni og heimilisfangi og sendar Umhverfisstofnun. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 4. júlí 2012.

Tengt efni