Stök frétt

Fuglar

Opnað hefur verið fyrir skilavef fyrir veiðiskýrslur og umsókn um veiðikort. Nú er verið að senda út aðgangsorð fyrir skilavefinn með tölvupósti. Það ættu allir að vera komnir með aðgangsorðið sitt fyrir helgi. Bent er þó á að aðgangsorðin frá í fyrra gilda þannig að þeir veiðimenn sem hafa aðgangsorð frá síðasta ári geta notað það. Eins og undanfarin ár er hægt að sækja um hreindyraveiðileyfi á skilavefnum en hægt er að lesa nánar um kvóta og verðskrá á hreindyr.is.

Á veiðiskýrsluna hefur verið bætt við síðu fyrir skráningu hlunnindaveiða. Markmiðið er að sjá hve stórt hlutfall veiði kemur úr hlunnindaveiðum á móti  skotveiðum. Á þeirri síðu  skráist  veiði samkvæmt 20. gr. laga 64/1994 vegna háfaveiða eða ungatöku. Ef veiði er tilgreind fyrir tegund og ákveðinn fjöldi gefinn upp þá óskum við eftir að veiðimenn tilgreini þann fjölda sem veiddist við hlunnindaveiðar.

Dæmi 1 

Veiðimaður veiðir tíu langvíur þannig að sjö veiddust í skotveiði en þrjár í háf. Hann  skráir þá á veiðiskýrsluna  heildar langvíuveiðina tíu langvíur en á hlunnindasíðuna  tiltekur hann hve margar þeirra voru veiddar í háf, það er þrjár langvíur.

Dæmi 2 

Veiðimaður veiðir tíu fýla þannig að sjö voru veiddir í skotveiðum en þrír sem ungatekja. Veiðimaðurinn skráir þá heildar fýlaveiðina í veiðiskýrsluna þ.e. tíu fýlar en tilgreinir svo þessa þrjá sem hann tók við hlunnindaveiðina á hlunnindasíðunni.