Stök frétt

Sumarlokun hefst hjá Umhverfisstofnun eftir helgi, þ.e. frá mánudegi 18. júlí til og með föstudegi 29. júlí vegna sumarleyfa starfsmanna. Gert er ráð fyrir að lágmarksþjónustu verði sinnt og þeim störfum sem óhjákvæmilegt er að sinna á þessum árstíma. Móttaka stofnunarinnar er lokuð á þessum tíma en skiptiborðið verður opið.