Stök frétt

Höfundur myndar: Þuríður Halldóra Aradóttir

Umhverfisstofnun hefur virkjað viðbúnaðarstöðu vegna gossins í Grímsvötnum. Undirbúningur er hafinn að því að flytja loftgæðamælistöð frá Akureyri og verður hún sett upp á Kirkjubæjarklaustri á morgun, mánudag.

Loftgæðamælistöðin á Raufafelli, undir Eyjafjöllum, bilaði í nótt og verður reynt að gera við hana eins fljótt og hægt er. Á morgun, mánudag verður staðan skoðuð betur og metin þörf á að fjölga mælum á áhrifasvæði gossins og þá um staðsetningu þeirra. Upplýsingum um loftgæðamælingar verður komið á framfæri um leið og þær liggja fyrir.

Umhverfisstofnun hefur útbúið leiðbeiningar fyrir almenning um viðbrögð við öskufalli. Þar á meðal er myndband sem gerir fólki kleift að meta magn svifryks út frá skyggni, en myndbandið má einnig sjá hér að neðan.