Stök frétt

Þann 11. mars sl. gaf Umhverfisstofnun út leyfi til ORF Líftækni hf. fyrir ræktun á erfðabreyttu byggi í gróðurhúsi gróðrarstöðvar Barra hf., Valgerðarstöðum 4, 701 Egilsstöðum. Umsagnaraðilar voru Ráðgjafanefnd um erfðabreyttar lífverur, Vinnueftirlitið, Heilbrigðisnefnd Austurlands og Sveitarfélagið Fljótsdalshérað. Leyfið er gefið út á grundvelli laga um erfðabreyttar lífverur nr. 18/1996 og reglugerðar nr. 276/2002 um afmarkaða notkun erfðabreyttra lífvera, annarra en örvera, og er veitt til 10 ára.