Stök frétt

Höfundur myndar: Jóhann Óli Hilmarsson

Veiðitímabil á öndum þ.e stokkönd, urtönd, rauðhöfðaönd, duggönd, skúfönd, hávellu og toppönd hefjast í dag miðvikudaginn 1. september. Helsingja er einnig leyfilegt að veiða frá og með deginum í dag utan Skaftafellssýslna en þar má ekki veiða helsingja fyrr en 25. september.

Veiðar á svartfugl þ.e álku, langvíu, stuttnefju, teistu og lunda hefjast einnig í dag ásamt því að leyft er að veiða dílaskarf, toppskarf, fýl, hvítmáf, hettumáf, og ritu.

Við viljum minna veiðimenn á að ganga vel um þessa auðlind og stilla veiðar í hóf. Einnig hvetjum við veiðimenn til að nýta bráðina sem best.

Meðfylgjandi mynd er tekin við Hálslón 27.ágúst 2010. Veiðimenn sem hér hafa verið á ferð hafa skilið mjög ósmekklega við þar sem bringurnar hafa verið hirtar og hræin skilin eftir. Slík aðkoma er mjög ljót og ekki til að bæta ímynd almennings af veiðimönnum og veiðum.

Endurnýjun veiðikorta

Veiðimenn eru minntir á að endurnýja veiðikort sín enda er einungis heimilt að stunda skotveiðar á fuglum sé veiðikort meðferðis. Hægt er að endurnýja veiðikortið á vefsíðu Umhverfisstofnunar.

Skil á fuglamerkjum

Sérstök ástæða er til að hvetja veiðimenn til að skila inn merkjum ef þeir veiða merkta fugla. Upplýsingarnar sem merkin veita eru mikilvægar fyrir rannsóknir á þessum veiðistofnum. Merkjunum á að skila til:
Náttúrufræðistofnun íslands
Fuglamerkingar
Pósthólf 5320
IS-125 Reykjavík

Upplýsingar um hvað þarf að fylgja með fuglamerkjum er að finna í Veiðidagbókinni sem fylgir veiðikortinu en einnig má fá upplýsingar í síma 590 0500 hjá Náttúrfræðistofnun Íslands

Skil á anda- og gæsavængjum

Nú í ár eins og undafarin ár munu Arnór Þ. Sigfússon og Halldór W. Stefánsson á Austurlandi safna og skoða gæsa- og andavængi til að meta hlutfall unga frá sumrinu. Vilji menn senda inn vængi skulu þeir senda vængi sömu megin af öllum fuglunum, t.d. hægri væng. Nánari upplýsingar um þetta má sjá á bls. 48 í Veiðidagbókinni 2010 eða í símum 4228000/8434924 (Arnór - ats@verkis.is ) og á austurlandi 4712553/8465856 (Halldór – doco@simnet.is ).

Ef vængir eru geymdir og sendir þá má ekki geyma þá í plasti lengi því þá úldna þeir fljótt. Best er að leyfa þeim að þorna og setja svo í pappakassa. Ef vængir eru höggnir af þá sendið alltaf vængi sömu megin af öllum fuglunum, t.d. hægri væng. Látið fylgja með nafn, síma, heimilisfang og/eða netfang og hvenær gæsirnar og endurnar voru veiddar og gjarnan á hvaða veiðisvæði skv. veiðidagbók veiðistjórnunarsviðs. Við sendum ykkur svo til baka aldurshlutfall í aflanum ykkar.