Stök frétt

Höfundur myndar: Jóhann Óli Hilmarsson

Veiðitímabil á grágæs og heiðagæs hefst í dag föstudaginn 20. ágúst. Helsingja er leyfilegt að veiða frá 1. september utan Skaftafellssýslna en þar má ekki veiða helsingja fyrr en 25. september. Tilgangur friðunar á helsingja í Skaftafellssýslum er að vernda þann varpstofn sem hefur verið að ná fótfestu á undanförnum árum. Helsingi verpir ekki á Íslandi nema í Skaftafellssýslum svo vitað sé og þykir því sérstök ástæða til þess að veiðimenn sýni aðgát á þessu svæði. Blesgæs er áfram friðuð eins og undanfarin ár.

Grágæsastofninn er áætlaður 100.000 einstaklingar, heiðagæsastofninn 350.000 einstaklingar og helsingjastofninn 70.000 einstaklingar. Þessar áætlanir miðast við talningar 2008.

Endurnýjun veiðikorta

Veiðimenn eru minntir á að endurnýja veiðikort sín enda er einungis heimilt að stunda skotveiðar á fuglum sé veiðikort meðferðis. Hægt er að endurnýja veiðikortið á vefsíðu Umhverfisstofnunar.

Skil á fuglamerkjum

Sérstök ástæða er til að hvetja veiðimenn til að skila inn merkjum ef þeir veiða merkta fugla. Upplýsingarnar sem merkin veita eru mikilvægar fyrir rannsóknir á þessum veiðistofnum. Merkjunum á að skila til:
Náttúrufræðistofnun íslands
Fuglamerkingar
Pósthólf 5320
IS-125 Reykjavík

Upplýsingar um hvað þarf að fylgja með fuglamerkjum er að finna í Veiðidagbókinni sem fylgir veiðikortinu en einnig má fá upplýsingar í síma 590 0500 hjá Náttúrfræðistofnun Íslands

Skil á gæsavængjum

Nú í ár eins og undafarin ár munu Arnór Þ. Sigfússon og Halldór W. Stefánsson á Austurlandi safna og skoða gæsa- og andavængi til að meta hlutfall unga frá sumrinu. Vilji menn senda inn vængi skulu þeir senda vængi sömu megin af öllum fuglunum, t.d. hægri væng. Nánari upplýsingar um þetta má sjá á bls. 48 í Veiðidagbókinni 2010 eða í símum 4228000/8434924 (Arnór - ats@verkis.is ) og á austurlandi 4712553/8465856 (Halldór – doco@simnet.is ).

Ef vængir eru geymdir og sendir þá má ekki geyma þá í plasti lengi því þá úldna þeir fljótt. Best er að leyfa þeim að þorna og setja svo í pappakassa. Ef vængir eru höggnir af þá sendið alltaf vængi sömu megin af öllum fuglunum, t.d. hægri væng. Látið fylgja með nafn, síma, heimilisfang og/eða netfang og hvenær gæsirnar og endurnar voru veiddar og gjarnan á hvaða veiðisvæði skv. veiðidagbók veiðistjórnunarsviðs. Við sendum ykkur svo til baka aldurshlutfall í aflanum ykkar.