Stök frétt

Ræstingarsvið ISS Ísland hefur fengið vottun Norræna umhverfismerkisins Svansins fyrir ræstingarþjónustu. Strangar kröfur Svansins tryggja  að fyrirtækið er í fremstu röð hvað varðar lágmörkun neikvæðra umhverfis- og heilsuáhrifa starfseminnar. ISS Ísland sem starfar á sviði fasteignaumsjónar er jafnframt fyrsta ISS fyrirtækið á heimsvísu til að fá slíka vottun. Umhverfisráðherra veitti leyfið þann 20. nóvember. “Það gleður mig að ISS hefur ákveðið að taka þátt í því með okkur að byggja upp sjálfbært samfélag. Það er ljóst að vistvæn innkaupastefna ríkisins hefur tilætluð áhrif sem lýsir sér í auknum áhuga á Svansvottun” sagði Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra.

Um ISS

ISS Ísland er sjálfstætt íslenskt fyrirtæki í eigu alþjóðafyrirtækisins ISS A/S, sem starfar í yfir 50 löndum. Á ræstingarsviði ISS starfa yfir 600 manns. ISS Ísland er stærsta ræstingarþjónustan á landinu og fyrsta ISS fyrirtækið í heiminum til að fá Svansvottun fyrir starfsemina. Viðskiptavinir fyrirtækisins á sviði ræstinga eru um 480 talsins, svo um er að ræða stóran hóp sem nú fær að njóta góðs af Svansmerkingu ISS og hefur vottun því mikil áhrif í samfélaginu. „Við erum ákaflega stolt yfir að fá umhverfisvottun Svansins” segir Guðmundur Guðmundsson, framkvæmdastjóri ISS Ísland. „Svanurinn tengir endanlega saman verkferla fyrirtækisins við umhverfisstefnu þess og tryggir viðskiptavinum ISS gæðaþjónustu, sem er vistvænni í framkvæmd. Okkur er það mikil ánægja að geta lagt okkar lóð á vogarskálarnar að umhverfisvænna atvinnulífi á Íslandi.“

 

Kröfur Svansins fyrir ræstiþjónustur:

  • Strangar kröfur um efnanotkun. Að minnsta kosti 50% hreinsiefna verða að vera umhverfismerkt, bann við notkun efna sem eru skaðleg umhverfinu og heilsu fólks. Heildarnotkun efna er lágmörkuð með réttri skömmtun.
  • Mengun vegna flutninga fyrirtækisins er lágmörkuð með kröfu um nýlegan bílaflota sem uppfyllir kröfur um útblástur.
  • Lögð er áhersla á að lágmarka notkun plastpoka, flokka úrgang og velja umhverfismerktar vörur í innkaupum.
  • Gæði ræstingar eru tryggð með reglulegri þjálfun og fræðslu starfsmanna ásamt ferlum til að fylgjast með gæðum þjónustunnar. Fyrirtækið þarf að uppfylla öll lög og reglugerðir sem eiga við starfsemina.

 

Ísland Svansvottaðasta land í heimi 2010?

Mikill áhugi er meðal íslenskra fyrirtækja fyrir Svansvottun nú í kreppunni. Umhverfisstofnun hafa borist 13 umsóknir í ár auk þess sem vitað er um mörg áhugasöm fyrirtæki. Ein af ástæðum þessa  aukna áhuga fyrir vottun er vistvæn innkaupastefna ríkisins sem var innleidd í vor. Stefnan hefur að leiðarljósi að minnka umhverfisáhrif opinberra innkaupa og bæta samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja sem þurfa að bjóða umhverfisvænni valkosti til að mæta kröfum ríkisins. Reykjavíkurborg hefur einnig markað sér slíka stefnu. „Vottun veitir fyrirtækjum forskot í samkeppni. Framsækin fyrirtæki hafa séð tækifærin og sótt um vottun til að til að geta svarað breyttum kröfum.“ segir Anne Maria Sparf, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun. „Markmiðið er að hérlendis verði 20 leyfi í lok árs 2010“ segir Anne, en það væri fimmföldun  á fjölda leyfa. „Þá væri Ísland í raun orðið Svansvottaðasta land í heimi – miðað við höfðatölu, að sjálfsögðu“.

 

Norræna umhverfismerkið Svanurinn

Svanurinn er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna sem byggist á óháðri vottun og viðmiðum sem taka tillit til alls lífsferils vöru og þjónustu. Tilgangur Svansins er að ýta undir sjálfbæra þróun samfélagsins svo að komandi kynslóðir hafi jafna möguleika og við til að mæta þörfum sínum. Alls er hægt að votta 66 mismunandi vöru- og þjónustuflokka. 

www.svanurinn.is