Stök frétt

Þann 21. október 2009 verður haldin ráðstefna um úrgangsmál í samstarfi Sambands íslenskra sveitarfélaga, umhverfisráðuneytisins og Umhverfisstofnunar. Ráðstefnan verður haldin á Grand Hótel í Reykjavík og hefst kl. 13 og lýkur kl. 17.

Fjallað verður um helstu stefnumál ríkisins í þessum málaflokki og fulltrúar sveitarfélaga munu kynna stefnu og hvernig sveitarfélög fara út í umhverfisvæna og hagkvæma meðhöndlun úrgangs.