Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur nú sent aðgangsorð að skilavef fyrir veiðiskýrslur og umsókn veiðkorta og hreindýraleyfa til allra veiðimanna. Um 15.000 veiðimenn fá aðgangsorðið sent með tölvupósti og um 5.000 fá senda veiðiskýrslu í bréfi. Nokkuð er um að menn hafi breytt um netfang á árinu og fá þá væntanlega ekki aðgangsorðið með tölvupósti. Þeir veiðimenn sem ekki hafa fengið aðgangsorðið í tölvupósti eða með bréfi geta sent tölvupóst á veidistjorn@ust.is og óskað eftir aðgangsorði. Nauðsynlegt er að gefa upp kennitölu í tölvupóstinum.