Hér á landi er nú unnið að innleiðingu tilskipunar Evrópusambandsins um viðskiptakerfi með losunarheimildir gróðurhúsalofttegunda. Flug mun falla undir gildissvið tilskipunarinnnar frá og með 1. janúar 2012. Gert er ráð fyrir að ári síðar falli fleiri tegundir starfsemi þar undir, þar á meðal áliðnaður. Umhverfisráðuneytið boðar til opins fundar um tilskipunina og fyrirhugaðar breytingar.
Fundurinn fer fram mánudaginn 3. nóvember 2008, kl. 14:00-16:00. Sal B á Hótel Sögu.
Magnús Jóhannesson ráðuneytisstjóri stýrir fundinum. Fundurinn fer fram á ensku. Þátttaka tilkynnist með pósti á postur@umhverfisraduneyti.is. Aðgangur ókeypis.