Stök frétt

Rúmlega 30 manns sóttu fyrirlestur Kristjáns Geirssonar fagstjóra á stjórnsýslusviði UST um aðgerðir á vegum stofnunarinnar í kjölfar strands Wilsons Muuga við Hvalsnes.

Kristján fór skilmerkilega yfir allar aðgerðir og lýsti þeim aðstæðum sem starfsmenn UST, Olíudreifingar og Framtaks urðu að glíma við fyrstu dagana eftir strandið þegar hafa þurfti sem hraðastar hendur við að ná olíu úr skipinu. Í hópi áheyrenda voru landeigendur við Hvalsnes, æðarbændur, raunvísindamenn, starfsmenn heilbrigðisnefnda og ýmissa stofnana og rigndi spurningum yfir Kristján að loknum fyrirlestrinum. Var greinilegt að fólk hefur fylgst grannt með þróun mála eftir strandið.