Stök frétt

Vegna nýrra reglugerða Evrópusambandsins um matvælaeftirlit og hollustuhætti sem væntanlegar eru hér á landi hefur Umhverfisstofnun sett saman leiðbeiningar fyrir matvælafyrirtæki um rekjanleika matvæla.

Framleiðsla og dreifing matvæla um allan heim er sífellt að aukast. Af og til koma upp tilfelli, eða grunur um varasöm matvæli á markaði. Til að auðvelda innköllun á matvörum, ef upp koma slík tilfelli hér á landi, er nauðsynlegt að geta rakið matvörur til framleiðanda/dreifingaraðila.

Rekjanleiki vöru getur því gert innköllun matvæla markvissari fyrir fyrirtækið, ásamt því að gefa neytendum skýrar og nákvæmar upplýsingar um þau matvæli sem um er að ræða.

Ábyrgð matvælafyrirtækja

Samkvæmt væntanlegri reglugerð um matvælaöryggi, bera stjórnendur matvælafyrirtækja ábyrgð á að hægt sé að rekja vöru til framleiðanda/dreifingaraðila og matvælaframleiðendur eru skyldugir til að geta tilgreint birgja og hafa skrá yfir þá aðila/fyrirtæki sem þeir afhenda vörur sínar.

Vörur sem reglugerðin nær yfir

Allar vörur og efni sem nota á, eða gert ráð fyrir að verði notuð í vinnsluferli matvæla, undirbúnining eða meðferð. Þetta nær því yfir allar gerðir af matvælum, þar með talin aukefni og varnarefni fyrir matvæli.

Fyrirtæki sem reglugerðin nær yfir

Matvælafyrirtæki á öllum stigum matvælakeðjunnar, frá frum-framleiðanda til matvælavinnslu og dreifingar.

Matvælafyrirtæki eru skilgreind sem fyrirtæki sem rekur starfsemi í tengslum við framleiðslu, vinnslu eða dreifingu matvæla á einhverju stigi. Dreifingafyrirtæki og vörugeymslur falla því einnig undir þessa skilgreiningu, þar sem þau dreifa og geyma matvæli.

Tilgangur með rekjanleika matvöru er að tryggja:

  • Einfaldleika – fljótlegt að innkalla vörur af markaði
  • Skýrar upplýsingar til eftirlitsaðila og neytenda vegna hugsanlegra viðbragða
  • Markvissara eftirlit.

Traust rekjanleikakerfi í matvælafyrirtækjum getur verið afgerandi til að hægt sé að innkalla vörur á markvissan hátt og veita neytendum og/eða eftirlitsaðilum upplýsingar og komast þannig hjá óþarflegri röskun og skaða á ímynd fyrirtækja þegar upp koma vandamál í tengslum við öryggi matvæla.

Einfalt að innkalla vörur af markaði

Krafan um rekjanleika er byggð á upplýsingum um “eitt skref aftur – eitt skref fram “, sem þýðir að matvælafyrirtæki skulu setja upp kerfi eða verklagsreglur sem gerir þeim kleift að tilgreina birgja og kaupendur af þeirra vörum, þ.e.a.s. matvælafyrirtæki á að geta tilgreint:

  • Alla þá aðila, sem þeir hafa móttekið matvörur/hráefni frá. Þetta geta verið einstaklingar (t.d. veiðimenn) eða fyrirtæki.
  • Öll þau fyrirtæki, sem taka við vörum fyrirtækisins. Krafan um rekjanleika gildir einnig um viðskipti milli smásala, t.d. dreifingaraðila og veitingahús.

Með þessu er tryggt, að það verður hægt að rekja vöruna frá birgjum til viðskiptavina.

Matvælafyrirtæki þurfa þó ekki að tilgreina viðskiptavini þegar um er að ræða neytendur.

Skýrar upplýsingar

Til að tilgangur ákvæða um rekjanleika náist, þurfa matvælafyrirtæki að varðveita að lágmarki upplýsingar um:

  • Nafn, heimilisfang birgja og skrá yfir vörur frá þeim,
  • Nafn, heimilisfang viðskiptavina og skrá yfir vörur til þeirra,
  • Viðskipta- eða afhendingadagur

Einnig skal benda á að það er æskilegt fyrir matvælafyrirtæki að skrá upplýsingar um:

  • Magn
  • Lotunúmer
  • Útskýring á vöru (pökkun, vöruflokkur, hráefni eða tilbúin matvæli)

Ekki er til algild regla um hversu lengi á að geyma upplýsingar, en það er æskilegt að fyrirtækin geymi nauðsynlegar upplýsingar um vöruna tvisvar sinnum þann tíma sem geymsluþol hennar segir til um, þ.e.a.s ef geymsluþol vöru er 1 ár, er æskilegt að geyma gögn í 2 ár. Þegar um er að ræða matvöru með stutt geymsluþol (minna en 3 mánuður), er æskilegt að gögn séu geymd í 1 ár.

Markvissara eftirlit

Það sem er afgerandi fyrir virkt rekjanleikakerfi er, hversu langan tíma það tekur að nálgast nákvæmar upplýsingar um vöru. Töf á upplýsingum getur haft úrslitaáhrif á viðbragðstíma fyrirtækisins og yfirvalda, ef upp koma vandamál vegna skaðlegra matvæla á markaði.

Rekjanleiki vöru innan fyrirtækisins (Innri rekjanleiki), er því gagnlegur fyrir fyrirtækið, þar sem hann stuðlar að betri, markvissari og kostnaðarminni innköllun. Ákvörðun um hversu nákvæmt innri rekjanleiki á að vera, skal fyrirtækið sjálft taka.