Stök frétt

Umhverfisstofnun vill vekja athygli á að eftir 1. janúar 2005 mega þeir einir framkvæma aðalskoðun leiksvæða, sem hlotið hafa faggildingu til þess. Áhugasömum er bent á að snúa sér til Löggildingastofu varðandi faggildinguna.

Í árslok 2002 kom út reglugerð nr. 942/2002 um öryggi leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim. Markmið hennar er að stuðla að öryggi barna og annarra með því að tryggja að leikvallatæki og leiksvæði séu hönnuð, frágengin og þeim viðhaldið á öruggan og viðurkenndan hátt. Reglugerðin gildir um öryggi leiksvæða og leikvalla tækja og eftirlit með þeim, hvort sem um er að ræða tímabundna starfsemi eða til frambúðar. Um öryggi leiktækja sem ætluð eru til einkanota fer samkvæmt ákvæðum reglugerðar um öryggi leikfanga og hættulegra eftirlíkinga.

Í ákvæði til bráðabirgða í reglugerðinni segir: Eftir 1. janúar 2005 mega þeir einir framkvæma aðalskoðun sem hlotið hafa faggildingu til þess. Aðalskoðun er hluti af innra eftirliti á leiksvæðum og skal hún fara fram árlega.