Stök frétt

Umhverfisstofun auglýsir tillögu að starfsleyfi fyrir starfsstöð Stjörnueggja hf. að Vallá, Kjalarnesi. Tillagan gerir ráð fyrir þrepaskiptri stækkun starfseminnar, fyrst veitt heimild fyrir 75.000 stæðum fyrir varphænur og að uppfylltum  skilyrðum verði heimiluð stækkun í allt að 95.000 stæði fyrir varphænur.

Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun (ust@ust.is) merkt UST202310-078, athugasemdir verða birtar við útgáfu nema annars sé óskað. Greinargerð mun fylgja starfsleyfi við útgáfu sbr. 6.gr. reglugerðar nr. 550/2018. Ef áhugi er fyrir hendi að halda opinn kynningarfund um starfsleyfistillöguna er bent á að hafa samband við Umhverfisstofnun með slíkt erindi sem fyrst.

Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 18. október 2024.

Tengd skjöl: