Stök frétt

Ný reglugerð hefur verið sett sem takmarkar innihald þalata í leikföngum og hlutum fyrir börn.

Reglugerðin tók gildi í maí og kemur í stað reglugerðar frá 2000. Með reglugerðinni eru sett takmörk á innihald þalata í leikföngum og öðrum vörum sem ætluð eru til notkunar af börnum svo sem hluti ætlaða til þess að kalla fram svefn, slökun, hreinlæti eða mötun þ.m.t. naghringir, snuð, túttur, smekkir, baðáhöld og mataráhöld. Takmörkunin er tvíþætt, annars vegar eru þrjú þalöt bönnuð með öllu í leikföngum og umönnunarvörum barna. Hins vegar er takmörkun á öðrum þremur þalötum sem ekki eins augljós hætta stafar af og nær aðeins yfir leikföng og umönnunarvörur sem börn geta stungið upp í sig.

Reglugerðin tekur til fleiri hluta í umhverfi barna en áður og miðað er við hluti sem lítil börn geta stungið í munninn, sogið eða tuggið. Reglugerðin er hluti af samræmdum aðgerðum á Evrópska efnahagssvæðinu.

Þalöt eru efnasambönd sem hafa þá eiginleika að gefa plasthlutum mýkt og er algengast að þau séu notuð með PVC plasti. Þalöt hafa verið notuð í efnaiðnaði síðan snemma á 20. öld og sem mýkingarefni í plast fljótlega eftir að það fór að koma á markað upp úr 1950. Vitað er að viss þalöt geta dregið úr frjósemi manna og verið skaðleg ófæddum börnum í móðurkvið. Þessi efni eru talin sérstaklega hættuleg yngstu börnunum sem eiga eftir að taka út mikinn þroska.